Mánudagur 4. febrúar 2008 kl. 09:24
Tekinn á 150 á Brautinni

Fimm ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gær. Sá er hraðast ók mældist á 150 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður var kærður fyrir stöðvunarskyldubrot, tveir fyrir að nota ekki öryggisbelti og einn ökumaður var staðinn að akstri sviptur ökuréttindum.