Tekinn á 139 km. í vímu
Á annan tug ökumanna gerðist brotlegur í umferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Einn þeirra sem staðinn var að hraðakstri var einnig undir áhrifum fíkniefna að því er sýnatökur á lögreglustöð sýndu. Bifreið hans mældist á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Allmargir til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur. Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og jafnframt bar nokkuð á að menn ækju án ökuréttinda.