Tekinn á 139 km hraða á Reykjanesbraut
Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært á annan tug ökumanna fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þrír ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir vegna gruns um ölvunarakstur. Þá var ökumaður færður á lögreglustöð þar sem staðfest var að hann hafi ekið undir áhrifum fíkniefna. Sá var einnig án ökuréttinda.