Fréttir

Tekin með stolin vegabréf
Þriðjudagur 21. apríl 2015 kl. 09:51

Tekin með stolin vegabréf

Karlmaður og kona voru tekin með stolin vegabréf í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærdag við vegabréfaskoðun til Kanada. Þegar lögreglan á Suðurnesjum ræddi við þau framvísuðu þau réttum skilríkjum. Þau voru handtekin og  flutt á lögreglustöð.

Í fyrradag stöðvuðu tollverðir karlmann sem framvísað hafði vegabréfi er reyndist vera breytifalsað við nánari athugun. Við leit í farangri hans fannst annað vegabréf sem hann kvaðst vera réttmætur handhafi að. Hann var einnig handtekinn og færður á lögreglustöð.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024