Tekin með stolið vegabréf
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina för erlendrar konu í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við vegabréfaskoðun vaknaði grunur um að ekki væri allt með felldu varðandi skilríki hennar og reyndist sá grunur á rökum reistur, því hún ferðaðist á stolnu vegabréfi. Konan, sem var á leið til Toronto í Kanada, viðurkenndi sök og við frekari yfirheyrslur kom fram að hún var rúmlega þrítug, en ekki tæplega tvítug eins og eigandi vegabréfsins, sem gefið var út í Þýskalandi.