Tekin með rúmlega 14.000 e-töflur í flugstöðinni
Kona á þrítugsaldri sætir gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á tilraun hennar til stórfellds smygls á fíkniefnum hingað til lands. Konan, sem er hollenskur ríkisborgari, kom hingað frá Brussel um miðjan síðasta mánuð. Tollverðir stöðvuðu för hennar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um að hún væri með fíkniefni í farteskinu. Svo reyndist vera því konan var með 14.200 e-töflur í farangrinum.
Málið er í rannsókn og er lögreglan á Suðurnesjum meðal annars að afla gagna frá löggæsluyfirvöldum erlendis. Fleiri hafa ekki verið yfirheyrðir vegna þess.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.