Fréttir

Tekin með 37 kókaínpakkningar innvortis
Þriðjudagur 19. mars 2019 kl. 13:03

Tekin með 37 kókaínpakkningar innvortis

Brasilísk kona á þrítugsaldri sætir nú gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla 37 pakkningum af kókaíni til landsins í síðasta mánuði. Konan var að koma frá Madrid á Spáni þegar tollgæslan stöðvaði hana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 
 
Lögreglan á Suðurnesjum handtók konuna og færði á lögreglustöð. Þar skilaði hún af sér efnunum sem hún hafði komið fyrir í leggöngum, maga og meltingarvegi. Samtals var um að ræða 400  grömm af kókaíni. Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst hún hafa átt að fá 7000 evrur eða tæplega eina milljón íslenskra króna fyrir flutninginn.
 
Public deli
Public deli