Tekin á 169 km hraða á Garðvegi
Sjö ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi Suðurnesjalögreglu í gær. Þar af mældist einn á 169 km hraða á Garðvegi þar sem hámarkshraði er 90 km. Var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Hinir voru mældir á Reykjanesbraut og einn þeirra á 139 km. hraða. Þrátt fyrir að viðurlög fyrir umferðarlagabrot hafi verið hert til muna, og daglegan fréttaflutning af þessu tagi, virðast sumir ekki láta sér segjast.






