Talsvert af sandsílaseiðum í Faxaflóa
	Nýlega lauk tíu daga sandsílaleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar á rannsóknaskipinu Dröfn RE 35. Markmið leiðangurs var m.a. að meta breytingar í stofnstærð og afla upplýsinga um styrk árganga sandsílis. Sjöunda sumarið í röð voru athuguð fjögur svæði við landið, þ.e. Breiðafjörður, Faxaflói, Vestmannaeyjar að Vík og Ingólfshöfði.
	
	Í leiðangrinum fékkst talsvert af seiðum í Faxaflóa og fengust seiði um allt rannsóknarsvæðið þar. Þetta er mesta magn af seiðum sem fengist hefur í flóanum frá því að athuganir hófust árið 2006. Ekki er hægt að segja til um hvort seiðin skila sér sem nýliðun í stofninn fyrr en á næsta ári með því að meta þá fjölda eins árs sandsíla, segir í frétt á mbl.is.
	
	Mun minna fékkst af seiðum á öðrum svæðum. Lítið fékkst af eldra síli á öllum svæðum en þau sem fengust voru líklega flest af 2007-árganginum. Eins og í fyrra var þéttleiki eldra sandsílis lítill og einnig virtist útbreiðslan vera minni en áður innan hvers svæðis, segir á vef Hafró.
	
	„Við fyrstu sýn virðist árgangurinn frá því í fyrra ekki ætla að skila nýliðun inn í stofninn sem máli skiptir. Þessar fyrstu niðurstöður eru háðar óvissu því þær eru eingöngu byggðar á lengdarmælingum á síli en ekki á aldurslesningum.
	
	Vöxtur á milli ára er breytilegur hjá síli og einnig er mikill breytileiki í lengd eftir aldri innan árs og milli svæða.
	
	Á næstu mánuðum fara fram aldursgreiningar á sýnum ársins og frekari úrvinnsla. Niðurstöður leiðangursins gefa þó til kynna að jákvæð teikn séu á lofti í Faxaflóa vegna magns sandsílaseiða þar og verður áhugavert að sjá hvernig þeim reiðir af fyrsta árið.
	
	Hins vegar er sandsílastofninn ennþá í mikilli lægð og þessar athuganir benda til að nokkra aldurshópa vanti í stofninn,“ segir á vef Hafró.


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				