Fréttir

Talsverð virkni norðurljósa í kvöld
Norðurljós á Garðskaga sl. laugardagskvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mánudagur 8. febrúar 2016 kl. 10:51

Talsverð virkni norðurljósa í kvöld

– Verður götulýsing á Garðskaga slökkt í kvöld?

Aðstæður til norðurljósaskoðunar eiga að vera góðar á Reykjanesskaganum í kvöld. Heiðskírt verður og samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands verður talsverð virkni í norðurljósum í kvöld en fer minnkandi þegar líður á vikuna.

Vinsælt er að safnast saman t.d. á Garðskaga og við Valahnjúk á Reykjanesi til að skoða norðurljósin. Ljósin er best að skoða þar sem ekki er ljósmengun af götulýsingu.

Í kvöld væri t.d. alveg kjörið að slökkva á götulýsingu á Garðskaga til að auka upplifun við norðurljósaskoðun þar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024