Taka undir mótmæli til Landsbanka
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs tekur undir bókun bæjarráðs þar sem þeirri ákvörðun Landsbankans að leggja af bankaþjónustu í Garði er mótmælt harðlega.
„Bæjarráð Garðs mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Landsbankans að leggja af bankaþjónustu í Garði. Gangi þessi ákvörðun bankans eftir verður engin bankaþjónusta í sveitarfélagi sem telur yfir 1.400 íbúa og er það algerlega óásættanlegt. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla yfirmenn Landsbankans til fundar um málið hið fyrsta,“ segir í bókun bæjarráðs nú á dögunum.
Bókunin var gerð í kjölfar tölvupósts frá útibússtjóra Landsbankans í Reykjanesbæ var lagður fyrir bæjarráð Garðs þar sem tilkynnt er sú ákvörðun bankans að síðasti dagur þjónustuheimsókna Landsbankans í Garði yrði þriðjudaginn 30. sept. sl.