Taka undir áskorun til sjávarútvegsráðherra
– veiðarnar á makríl efla og hleypa lífi í smærri byggðarlög
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs tekur undir bókun bæjarráðs frá því nýverið, þar sem lýst er stuðningi við makrílveiðar smábáta og skorað á sjávarútvegsráðherra að endurskoða þá ákvörðun að stöðva makrílveiðar smábáta.
Veiðar á makríl sem veiddur er á færi á grunnslóð og við ströndina fer allur til vinnslu í landi og skapar þannig fjölmörg störf.
Í bókun Garðmanna er skorða á sjávarútvegsráðherra að heimila makrílveiðar smábáta áfram og er ráðherra hvattur til að auka hlutfall þess magns sem veitt verður á færi þar sem veiðarnar efla og hleypa lífi í smærri byggðarlög vítt og breitt um landið samhliða aukningu á hágæða hráefni til manneldis.