Fréttir

Tafir á framkvæmdum við Iðndal í Vogum
Frá framkvæmdum við Iðndal í Vogum fyrir fáeinum vikum. VF-mynd: hilmarbragi
Föstudagur 7. október 2016 kl. 12:40

Tafir á framkvæmdum við Iðndal í Vogum

Eitt stærsta verkefni Sveitarfélagsins Voga í ár var endurnýjun götunnar Iðndals. Verkið hefur tafist, en því átti að vera lokið um síðustu mánaðamót. Sem stendur er gatan lokuð við Stapaveg.

Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir vonir standa til að framkvæmdum ljúki á næstu tveimur vikum eða svo.

„Þá verður búið að endurnýja allar lagnir, auk þess sem ný og sverari kaldavatnslögn verður komin í notkun. Að lokum verður svo gatan malbikuð og frágengin að öðru leyti. Það var löngu tímabært að gatan yrði lagfærð, enda slitlagið orðið illa farið á stórum köflum,“ segir bæjarstjórinn í vikulegu fréttabréfi sínu í Vogum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024