Tæplega 5000 undirskriftir

Á heimasíðu Víkufrétta er hnappur sem heitir „Flýtum tvöföldun Reykjanesbrautar.“ Þar getur fólk skrifað nafn sitt og stutt þannig baráttuna fyrir tvöföldun. Það er áhugahópur um örugga Reykjanesbraut og bætta umferðarmenningu sem stendur fyrir söfnuninni.
Markmið hópsins eru að tvöföldun verði sett á vegaáætlun fyrir árin 2002-2006, að umhverfismati verði lokið 2001 og að hönnun og framkvæmdir hefjist í síðasta lagi snemma árs 2002 og ljúki ekki síðar en árið 2004. Tíminn er mannslíf.
Áhugahópurinn vill einnig minna á borgarafund í Stapa, fimmtudaginn 11. janúar nk. kl. 20.