Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 10. október 2001 kl. 10:00

Systkinaafsláttur á leikskóla

Bæjarráð tók til uppfjöllunar á miðvikudag greinargerð frá fjölskyldu- og félagsmálaráði vegna foreldra sem eiga fleiri en eitt barn á leikskóla. Í nágrannasveitarfélögum er gjaldskrá þannig uppbyggð að tekið er tillit til aðstæðna þessa hóps. Reykjavíkurborg veitir foreldrum 33% afslátt vegna fyrsta barns og 75% vegna annars barns auk þess sem veittur er afsláttur er veittur af matarkostnaði. Sömu sögu er að segja í Fjarðarbyggð en þar er 25% afsláttur vegna annars barns og 100% vegna þriðja. Óskað er eftir því að Reykjanesbær taki upp svipaða gjaldskrá þar sem aðstæður foreldra með fleiri en eitt barn á leikskóla eru teknar til greina.
Bílakjarninn
Bílakjarninn