Bygg
Bygg

Fréttir

Sýslumaður 148 milljónir í mínus
Föstudagur 17. ágúst 2007 kl. 09:24

Sýslumaður 148 milljónir í mínus

Embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli var rekið með halla frá árinu 2000. Hallinn jókst verulega á síðasta ári og nam 148 milljónum í árslok.
Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga og greint er frá í Fréttablaðinu í dag.
Á það er bent að haga beri útgjöldum í samræmi við fjárheimildir. Í stofnun með hallarekstur eigi að skera niður fáist ekki auknar heimildir.

„Ég er fullmeðvitaður um þá ábyrgð sem ég ber," segir Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, áður sýslumaður á Keflavíkurflugvelli í samtali við Fréttablaðið.

Sýslumannsembættið sameinaðist lögregluliði Keflavíkur um áramót og úr varð embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Jóhann segir margar ástæður búa að baki hallarekstrinum en nefnir sérstaklega að öll starfsemi á Keflavíkurflugvelli hafi vaxið mjög á undanförnum árum. Þá hafi brotthvarf varnarliðsins haft talsverð áhrif á síðasta ári.

„Skýringar hafa verið gefnar í ótal minnisblöðum og greinargerðum," segir Jóhann og bætir við að unnið sé í málinu innan dómsmálaráðuneytisins, í samvinnu við fjármálaráðuneyti og Ríkisendurskoðun.

Spurður hvort Alþingi hafi skammtað embættinu of naum fjárráð svarar Jóhann því einu til að hann fagni hvernig tekið er á málinu í hans nýja ráðuneyti og að unnið sé að lausn þess.

 

www.visir.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn