Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Syntu tæpa 234 kílómetra fyrir Ólavíu Margréti
Úr áheitasundinu í gær. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Mánudagur 2. nóvember 2015 kl. 08:47

Syntu tæpa 234 kílómetra fyrir Ólavíu Margréti

Krakkarnir höfðu safnað áheitum til að leggja góðu málefni lið. Þau ákváðu að styðja og styrkja Ólavíu Margréti Óladóttir sem er lítil stelpa frá Grindavík sem er með krabbamein í augum.

„Ólavía Margrét fæddist í júní sl. og er þegar búin að fara í nokkrar aðgerðir til að reyna að bjarga augunum hennar. Foreldrar hennar eru ungt og efnilegt fólk en því miður leggst mikill kostnaður á fólk sem stendur í svona erfiðum málum og það er okkar kæru vinir að hjálpa sundkrökkunum að safna fé fyrir þetta góða fólk og taka vel undir kallið frá sundfólkinu okkar," sagði í tilkynningu frá grindvíska sundfólkinu fyrir áheitasundið.

Búið er að stofna reikning þar sem leggja má Ólavíu Margréti lið og er bankanúmerið 0143-05-60098 kt:300715-3110.

Nánar verður fjallað um áheitasundið í Sjónvarpi Víkurfrétta á fimmtudagskvöld.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024