Sýnir ljósmyndir á Thorvaldsen
Anna María Skúladóttir, ljósmyndari úr Garði, mun á næstu vikum standa fyrir einkasýningu á verkum sinum á Thorvaldsen-bar í Reykjavík.
Anna hefur frá síðasta hausti numið ljósmyndun við New England School of Photography í Boston og á ár eftir af sínu námi. Sýningin, sem verður opnuð á laugardaginn, er fyrsta einkasýning Önnu.
„Myndirnar á sýningunni eru úr lokaverkefninu mínu á síðustu önn í skólanum og eru af mannslíkamanum,“ sagði Anna í samtali við Víkurfréttir. Þetta er fyrsta einkasýningin mín en ég sýndi eitt verk á sýningu úti ásamt öðrum nemum. Þar voru valdar myndir frá átta nemum í mínum skóla þannig að það var gaman að vera í þeim hópi.“
Sýningin verður opnuð formlega kl. 17 á laugardag, eins og áður sagði, og mun standa fram á 2. október, en þá heldur Anna út til Bandaríkjanna á nýjan leik til að klára skólann.
Anna segir framtíðaráætlanir sínar ekki ljósar en hún vonast til að fá tækifæri til að vinna erlendis og sérhæfir hún sig í auglýsingaljósmyndun.
Mynd: Ein af myndum Önnu sem fylgdu viðtali í Víkurfréttum í vetur