Sýningar opnar í Garðinum
Í dag opnuðu sýningar í Garðinum vegna 100 ára afmælis sveitarfélagsins.
Sýningarnar eru í Auðarstofu, Byggðasafninu, bæjarskrifstofunum, Gerðaskóla, Sæborgu og á Gauksstöðum. Nánari upplýsingar má finna í síðasta tölublaði Víkurfrétta og á vef sveitarfélagsins www.sv-gardur.is
Margir lögðu leið sína í Garðinn í blíðskapar veðri og nutu listarinnar.
Mynd: Garðskagaviti. VF-mynd/IngaSæm