Sýnið tillitsemi við slysavettvang

Ökumenn sem leið áttu um Reykjanesbrautina í gærmorgun áttuðu sig ekki á þeirri miklu hálku sem var á veginum og lenti til að mynda ein bifreið aftan á tækjabifreið Brunavarna Suðurnesja sem var kyrrstæð á vegaröxl með blikkandi blá neyðarljós.