Sýna einstaka mynd af miklum hæðarbreytingum í Grindavík og nágrenni
Loftmyndir ehf. mynduðu Grindavík í lágflugi þann 17. janúar sl. Í fluginu voru teknar myndir sem eru 5x5 sm myndeiningar sem veita miklar landfræðilegar upplýsingar. Auk þess að mynda Grindavík var tekið stærra, 4,5 km breitt, belti þvert yfir nesið milli Grindavíkur og Voga. Reykjanesið var einnig allt myndað af Loftmyndum ehf. þann 27. júlí 2023.
Eftir þessum gagnasettum sem safnað hefur verið með þessum myndatökum hafa verið gerð nákvæm landlíkön sem hægt er að bera saman og fá þannig einstaka mynd af þeim miklu hæðarbreytingum sem orðið hafa í Grindavík og nágrenni.
Á Facebook-síðu Loftmynda ehf. má sjá nokkrar myndir sem unnar hafa verið úr verkefninu. Mestu hæðarbreytingarnar eru í vestari sigdalnum þar sem Grindavíkurvegurinn kemur inn í bæinn. Þær breytingar sýna landsig sem er rétt um -2. Þá segir að athyglisvert er að sjá sneiðina sem liggur um miðjan bæinn sem lítið hefur breyst í hæð. Hún liggur á milli sigdalsins sem myndaðist í kjölfar hamfaranna 10. nóvember og sigdals sem myndaðist þann 14. janúar sl.
Daði Björnsson, hjá Loftmyndum ehf., skrifar athugasemd við færslu fyrirtækisins og útskýrir myndirnar sem þar birtast betur: „Til útskýringar þá er rétt að nefna það að beinar línur sem liggja þvert á fluglínunar og rúðustrikun sem kemur fram sumstaðar eru ekki brot í landi. Heldur eru þær tilkomnar vegna smávægilegs hæðarmunar sem kemur fram í myndmælingunni og útreikun hæðarmódelanna. Landhækkun á austur og vestur hliðum svæðisins gæti einnig átt sér sambærilegar skýringar, hækkunin suðaustan við stóra hraunið er hinsvegar það mikil að líklegt er að hún eigi sér raunverulegan stað í landrisi.“
Nýju gögnin úr loftmyndafluginu 17. janúar eru nú komin inn á map.is og á map.is/grindavik. Eftir helgina bætast síðan við hæðarlínur eftir nýja landlíkaninu og fleiri áhugaverð gögn, segir á síðu Loftmynda ehf.