HSS
HSS

Fréttir

Svört skýrsla um Suðurnesin
Miðvikudagur 14. september 2011 kl. 10:57

Svört skýrsla um Suðurnesin

Nýleg Áfangaskýrsla Velferðarvaktarinnar greinir frá stöðunni á Suðurnesjum núna rúmum þremur árum eftir efnahagshrunið haustið 2008. Fram kemur í sky´rslunni að Suðurnesin skera sig úr að mörgu leyti í samanburði við aðra landshluta, einkum hvað varðar atvinnuleysi, fjármál og menntunarstig. Á Suðurnesjum er hæsta hlutfall atvinnuleysis eða 14,5% en hlutfallið á landsvísu er 8,6%. Margir íbúanna eiga í fjárhagslegum erfiðleikum. Umboðsmaður skuldara hefur til dæmis opnað útibú á svæðinu, útgjöld sveitarfélaga vegna fjárhagsaðstoðar hafa aukist og einstaklingar þiggja fjárhagsaðstoð í lengri tíma en áður.

Samhliða þessu hefur álag á félagsþjónustu sveitarfélaganna aukist og það sama má segja um Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Hluti íbúa á Ásbrúarsvæðinu á einnig í fjárhagslegum erfiðleikum og hlutfall grunnskólanema á Ásbrú sem þurfa á séraðstoð að halda er hærra en í öðrum skólum á svæðinu. Menntunarstig meðal þeirra sem eru í atvinnuleit á svæðinu er lægra í samanburði við landið allt, en 69% atvinnulausra á Suðurnesjum eru einungis með grunnskólamenntun en á landinu öllu er hlutfallið 52%.

Á Suðurnesjum skila 90% grunnskólanema sér í framhaldsskóla á meðan landsmeðaltal er 97%. Hlutfall örorkulífeyrisþega er hátt á Suðurnesjum. Í aldurshópnum 16–66 ára á Suðurnesjum eru 8,8% einstaklinga á örorkulífeyri. Á landinu öllu er hlutfallið 6,9%. Hlutfall barna á Suðurnesjum sem eiga foreldra á atvinnuleysisskrá er 21,8% en yfir landið mælist hlutfallið 14%. Það sem af er árinu 2011 eru 13% þeirra sem farið hafa í greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara af Suðurnesjum en þar búa 6,6% landsmanna. Árið 2010 voru 8,6% allra gjaldþrota fyrirtækja á landinu á Suðurnesjum. 25% af eignum Íbúðalánasjóðs eru á Suðurnesjum. Álag á félagsþjónustu sveitarfélaganna hefur aukist verulega og fleiri fá fjárhagsaðstoð til lengri tíma.

Ýmsar aðgerðir eru fyrirhugaðar af ríkinu, m.a. að hefja náms- og starfsþjálfunarúrræði á vegum Vinnumálastofnunar sem miða að því að auka virkni einstaklinga í atvinnuleit. Haustið 2011 gefst svo einstaklingum í atvinnuleit kostur á að fara í nám í eina önn án þess að bætur skerðist. Þetta úrræði nær til landsins alls en ny´tist afar vel á Suðurnesjum í ljósi mikils atvinnuleysis og ungs aldurs atvinnuleitenda. Tímabil atvinnuleysisbóta hefur tímabundið verið lengt úr þremur árum í fjögur.

Náms- og starfsráðgjafi hefur verið ráðinn tímabundið til Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. Stofnað hefur verið atvinnuþróunarfélag til að styðja við atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur y´tt úr vör menntaverkefni fyrir Suðurnes þar sem markmiðið er að efla menntun og menntunarúrræði á svæðinu og ráðið tvo verkefnisstjóra til starfa.

Umboðsmaður skuldara hefur opnað útibú á Suðurnesjum. Komið hefur verið á formlegu samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum á sviði velferðarmála og verkefnastjóri ráðinn. Landshlutasamtök Sveitarfélaga á Suðurnesjum vinna að sóknaráætlun fyrir árið 2012 í samvinnu við stjórnvöld. Þar verður 5-7 verkefnum á svæðinu forgangsraðað er kemur að fjárlagavinnu. Verkefnin samræmast áherslum Ísland 2020.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvað hefur gerst síðan ríkisstjórnin fundaði um málefni Suðurnesja í nóvember 2010?

Í nóvember 2010 fundaði ríkisstjórn Íslands með sveitarstjórum á Suðurnesjum þar sem kynntar voru aðgerðir til að efla atvinnu, menntun og velferð á svæðinu. Í kjölfarið var settur á fót samráðsvettvangur stjórnvalda og sveitarfélaga og hagsmunaaðila á Suðurnesjum þar sem unnið var að eftirfarandi verkefnum:


1. Stofnað hefur verið atvinnuþróunarfélag sem er samstarfsverkefni Byggðastofnunar og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum til að styðja við atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
2. Veitt hefur verið fjármagn til uppbyggingar hersetusafns á Suðurnesjum.
3. Hámarkstímabil atvinnuleysisbóta hefur verið lengt úr þremur árum í fjögur.
4. Komið hefur verið á formlegu samstarfi sveitarfélaga á sviði velferðarmála og verkefnisstjóri verið ráðinn.
5. Umboðsmaður skuldara hefur opnað útibú á Suðurnesjum.
6. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ráðið tvo verkefnisstjóra til þess að sinna þróunarverkefni varðandi eflingu menntunar á Suðurnesjum næstu tvö árin.
7. Náms- og starfsráðgjafi hefur verið ráðinn tímabundið til Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum.
Önnur verkefni sem unnið var að voru flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja, Gagnaver, klasasamstarf fyrirtækja á sviði líforku, og kynningar- og markaðsátak á fasteignum á Ásbrú.