Svört leyniskýrsla um Sparisjóðinn í Keflavík í dagsljósið
Svört leyniskýrsla um Sparisjóðinn í Keflavík er komin fram í dagsljósið. Það er nýtt vefrit, Kjarninn.is, sem birtir skýrsluna í heild sinni. RÚV hafði síðasta sumar birt upplýsingar úr þessari sömu skýrslu.
Skýrslan er unnin af Price Waterhouse Coopers (PwC) fyrir Fjármálaeftirlitið (FME). Það fól PwC að gera úttekt á tilteknum þáttum í starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík eftir að FME hafði tekið sjóðinn yfir.
Vefritið Kjarninn.is hefur skýrsluna undir höndum og birtir hana í gær en umræddri skýrslu hefur verið haldið frá stofnfjárhöfum, sem margir hverjir urðu fyrir miklum fjárhagslegum búsifjum vegna falls sjóðsins. Stofnfjáreigendur í Sparisjóðnum í Keflavík voru 1.750 talsins en þeir töpuðu tæplega 17 milljörðum króna á falli Sparisjóðsins í Keflavík, skv. umfjöllun Kjarnans. Þar segir jafnframt að skýrslan sé í senn ótrúleg og skuggaleg yfirlestrar. Ekki stóð steinn yfir steini í rekstri sparisjóðsins.
Í almennum niðurstöðum PwC í skýrslunni segir hins vegar:
„Stjórn og stjórnendur voru undir miklum þrýstingi að sýna góða afkomu, tryggja fjármögnun og halda uppi virði sjóðsins. Stutt getur verið á milli þess sem augljóslega telst ekki til venjulegra viðskiptahátta og þess sem hugsanlega gæti verið saknæmt,“ segir í tilvitnun Kjarnans í skýrslu PwC fyrir Fjármálaeftirlitið.
Umfjöllun vefritsins Kjarnans má sjá hér.