Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Svona verður Keflavíkurflugvöllur árið 2040
Svona gæti verið umhorfs á Keflavíkurflugvelli eftir 25 ár. Óvíst er þó að Sandgerðingar verði komnir með bæjarfjall á þeim tíma.
Fimmtudagur 26. febrúar 2015 kl. 15:15

Svona verður Keflavíkurflugvöllur árið 2040

– Nýtt „masterplan“ fyrir Keflavíkurflugvöll kynnt

Hönnunarstofan Nordic - Office of Architecture í Noregi varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um gerð uppbyggingar- og þróunaráætlunar (Masterplan) Keflavíkurflugvallar til næstu 25 ára.

„Valnefnd var einróma í niðurstöðu sinni og var sömuleiðis samhljómur í álitsgjöf hagsmunaaðila um vinningstillögu. Tillaga Nordic er vel útfærð og uppfyllir kröfur í þeim þáttum sem settir voru fram í samkeppnisgögnunum. Sett er fram heildstæð áætlun í umhverfismálum og gert ráð fyrir miklu og góðu samráði við hagsmunaaðila á öllum stigum skipulagsgerðarinnar. Þá er hugsað fyrir því að nýir tekjumöguleikar opnist í hverjum framkvæmdaáfanga og að tækifæri til tekjuöflunar opnist um leið og afkastageta er aukin,“ segir Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia og formaður valnefndar.



Sýning á tillögum sem bárust frá 6 alþjóðlegum hönnunarstofum hefur verið sett upp á skrifstofum Isavia á þriðju hæð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og verður hún opin almenningi kl. 9 – 16 alla virka daga til 20. mars næstkomandi.

Vinningstillagan þótti skara fram úr varðandi sjálfbærni og skipulags- og umhverfismál auk þess sem skýr stefna er sett í tekjusköpun á uppbyggingartíma og rík árhersla er á  samráð við hagsmunaaðila og nærsamfélag flugvallarins. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun flugstöðvarinnar til norðurs og lagningu nýrrar norður-suður flugbrautar vestan við flugvöllinn í framtíðinni.

Vinningshafinn reyndur í þróun flugvalla
Nordic - Office of Arthitecture hefur haft með höndum mörg stór þróunarverkefni svo sem stækkun flugvallanna í Osló, Björgvin og Zuzhny í Rússlandi. Verkefnastjóri tillögunnar er íslenskur, Hallgrímur Þór Sigurðsson, og þekkir hann vel umhverfi Keflavíkurflugvallar. Samstarfsaðili Nordic í verkefninu er ráðgjafarfyrirtækið COWI A/S í Danmörku.

Fyrirtækið mun á næstu mánuðum  vinna að frekari útfærslu á tillögum sínum í samráði við Isavia og er stefnt að því að fullmótaðri uppbyggingar- og þróunaráætlun verði skilað í september næstkomandi. Verður hún unnin í nánu samráði við hagsmunaaðila flugvallarins og mun vera leiðarljós í framtíðarskipulagi svæðisins.

Önnur fyrirtæki sem þátt tóku í samkeppninni:
INECO Ingenierta Y Economia del Transporte SA á Spáni
Ramboll A/S í Danmörku
Naco Netherlands Airport Consultants í Hollandi
EC Harris LLP í Bretlandi
Mott MacDonald LTD í Bretlandi








Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Public deli
Public deli