Svona úthluta Garðmenn byggðakvóta
	Samkvæmt bréfi Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytisins er úthlutað 208 þorskígilda byggðakvóta til Sveitarfélagsins Garðs. Á fundi bæjarráðs í Garði í gær var lagt til að úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa verði með sama hætti og var á síðasta fiskveiðiári.
	
	Samkvæmt aðferð síðasta fiskveiðiárs þá var 50% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar nr. 652/2014 og lönduðu botnfiskafla á fiskveiðiárinu 2013/2014 og 50% verði skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014.
	
	Jafnframt er ítrekað að þar sem ekki er löndunarhöfn í Garði verði fullgilt að fiskiskip landi afla í öðru sveitarfélagi, en til vinnslu í Garði.


 
	
					 
	
					


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				