Svona eru opnunartímar skemmtistaða yfir hátíðarnar
Nú þegar jólin eru að ganga í garð telur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rétt að minna á reglur um skemmtanahald og hefur birt neðangreint á fésbók lögreglunnar. „Sömuleiðis er rétt að undirstrika að áfengisveitingar eru háðar tímamörkum í leyfum bæjarstjórnar eftir því sem við á. Lesa má nánar um opnunartíma og áfengisveitingar hér að neðan,“ segir í tilkynningunni.
SKEMMTANIR OG VEITINGAR UM JÓL OG ÁRAMÓT 2018 -2019.
24. des. Allt skemmtanahald bannað frá: kl. 18:00
25. des. Allt skemmtanahald bannað til kl. 06:00 að morgni 26. desember.
26. des. Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða) aðfaranótt 27. desember en þó ekki lengur en til kl. 03:00 sbr. málsmeðferðarreglur Reykjanesbæjar.
31. des. Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða).
1. jan Skemmtanahald leyft (skv. skilyrðum leyfis eins og um helgi væri að ræða) aðfaranótt 2. janúar en þó ekki lengur en til kl. 03:00 sbr. málsmeðferðarreglur Reykjanesbæjar.
1. Heimilt er að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn. Áfengisveitingar eru þó háðar tímamörkum í leyfum bæjarstjórna. Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar.
2. Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur bæjarstjórna kveða á um.
3. Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.
Ath. Samkvæmt 6. gr. málsmeðferðarreglna Reykjanesbæjar um veitingastaði og gististaði er þeim veitingastöðum á Suðurnesjum sem leyfi hafa til áfengisveitinga, heimilt að veita áfengi aðfaranætur 27. desember og 2. janúar sem um aðfaranætur laugardaga, sunnudaga eða almennra frídaga væri að ræða. Lengst má þó veita áfengi til kl. 03:00.