Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Svona er staðan við nýju hringtorgin
Myndin var tekin við framkvæmdasvæðið á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar.
Þriðjudagur 1. ágúst 2017 kl. 08:59

Svona er staðan við nýju hringtorgin

Framkvæmdum við tvö hringtorg á Reykjanesbraut ofan Reykjanesbæjar miðar vel. Verklok eru áætluð um miðjan september.
 
Hringtorgin eru annars vegar á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar og hins vegar á mótum Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar. Útboð fór fram fyrr í sumar og var verktakafyrirtækið Ístak lægstbjóðandi.
 
Útboð Ístaks hljóðaði upp á rúmar tvö hundruð og fimmtán milljónir króna fyrir bæði hringtorgin. Framkvæmdir hefjast í næstu viku og eru áætluð verklok þann 15. september næstkomandi. 
 
Ökuhraði á framkvæmdasvæðinu var færður niður í 50 km á klukkustund á meðan á framkvæmdum stendur og þá hefur vinstri beygja af Þjóðbraut og Aðalgötu verið bönnuð inn á Reykjanesbraut. Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið á framkvæmdasvæðinu en engin alvarleg slys.
 
Hringtorgin eru hönnuð sem tvöföld hringtorg og verður ytri hringur fyrst tekinn í notkun og er þá hægt að stækka hringtorgið með innri hring þegar farið verður í tvöföldun Reykjanesbrautar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024