Bygg
Bygg

Fréttir

Svona ætlar HSS að spara 73 milljónir króna
Mánudagur 24. október 2011 kl. 19:49

Svona ætlar HSS að spara 73 milljónir króna

- Sparnaður á HSS kynntur starfsmönnum í dag

Tveir almennir starfsmannafundir voru haldnir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja bæði í Keflavík og Grindavík í dag til að tilkynna um fyrirhugaðan niðurskurð í kjölfar framsetts fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar. Krafan er niðurskurður hjá HSS um 72,9 m.kr. Á undanförnum vikum hefur verið fundað með stjórnendum allra deilda og miðlað upplýsingum og safnað saman hugmyndum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Í dag voru sem sagt lagðar fram niðurskurðarhugmyndir sem greint er frá hér að neðan. Meginmarkmiðið er að vernda þjónustu við sjúklinga eins vel og mögulegt er, segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri HSS.


Hún segir þessar upplýsingar eru settar fram með þeim fyrirvara að ef breytingar verða á fjárlögum eftir umræður á þingi og þá munu þessar ákvarðanir að sjálfsögðu vera endurskoðaðar.


Sameining fæðingadeildar og mæðraverndar í Ljósmæðravaktina á að spara 10 milljónir króna.


Útboð á ræstingu hjá HSS spari 10 milljónir króna.


Skipulagsbreytingar á ýmis konar næturþjónustu frá kl. 22:00 – kl. 07.30 spari 5 milljónir króna.


Skurðstofur – síðustu biðlaunagreiðslur falla niður 2011 og þar sparast 5 milljónir króna.


Hagræðingaraðgerðir og sparnaður í Víðihlíð í Grindavíkupp á 11 milljónir króna.


Hagræðing í eldhúsi – ýmsar leiðir til skoðunar. Sparnaður 5 milljónir króna.


Sparnaður á rannsókn, 3 milljónir króna.


Minni rannsóknir á vöktum á rannsókn og röntgen spari 4 milljónir króna. (Pantanir í gegnum sérfræðing á bakvakt eftir kl. 16)


Sparnaður í viðhaldi fasteigna, rafmagni, vatni, prentkostnaði o.fl. 9 milljónir króna.


Endurskoðun bakvakta í heimahjúkrun o.fl. 5 milljóna króna sparnaður.


Ýmislegt 6 milljónir króna.


Samtals gera þetta 73 m.kr.