HSS
HSS

Fréttir

Svipmyndir úr ljósmyndasafni Víkurfrétta
Föstudagur 18. nóvember 2011 kl. 15:24

Svipmyndir úr ljósmyndasafni Víkurfrétta

Í 30 ára útgáfusögu Víkurfrétta hefur safnast gríðarlegur fjöldi ljósmynda. Síðustu misserin hefur verið unnið að því að skrásetja þessar myndir með Fotoweb-kerfinu til að þær verði betur aðgengilegar í framtíðinni enda er óhætt að segja að safnið hafi að geyma samtímasögu Suðurnesjamanna síðasta aldarfjórðunginn. Hér er því um mjög verðmætar sögulegar heimildir að ræða. Nú hafa hátt í 10 þúsund ljósmyndir verið skrásettar í kerfið en það er þó aðeins lítill hluti af heildar safninu.

Víkurfréttir munu af og til birta myndir úr safninu á ljósmyndavef Víkurfrétta á vf.is undir heitinu Svipmyndir úr safni,  lesendum til fróðleiks og ánægju .
 
 
Bílakjarninn
Bílakjarninn