Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Svipar mjög til fyrri gosa á Sundhnúksgígaröðinni
Ljósmynd úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar með vísindafólk í nótt. Ljósmynd: Almannavarnir/Björn Oddsson
Sunnudagur 17. mars 2024 kl. 12:30

Svipar mjög til fyrri gosa á Sundhnúksgígaröðinni

Virkni á þremur stöðum á gossprungunni.

Eldgosið sem hófst kl. 20:23 í gærkvöldi heldur áfram en eftir því sem leið á nóttina dró úr virkninni á gossprungunni og nú gýs á þremur stöðum. Einnig dró verulega úr skjálftavirkninni í nótt og nánast engin skjálftavirkni mældist eftir kl. 3 til morguns, en þá dró einnig úr gosóróa. Þessi þróun svipar mjög til fyrri gosa á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Skömmu eftir miðnætti fór hraun yfir Grindavíkurveg og stefndi í átt að heitavatnslögninni frá Svartsengi. Lítil hreyfing hefur verið á þeirri hrauntungu síðan í nótt og er það nú um 200 m frá lögninni. Önnur hrauntunga rennur meðfram varnargörðum austan við Grindavík og í átt að Suðurstrandarvegi. Viðbragðsaðilar á svæðinu fylgjast með framrásarhraða hraunsins þar en það hefur færst hægt og rólega áfram.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Eldgos17032024

Gossprungan eins og hún var um kl. 11 í dag. Til hægri á myndinni sést í Stóra-Skógfell en vinstra megin í Sýlingarfell. Virkasti hluti sprungunnar er austan við Sýlingarfell, en minni gosop norðar.

Veðurspá 

Veðurspá í dag er norðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum, en dregur heldur úr vindi er líður á daginn. Gasmengun mun þá einkum berast til suðvesturs frá gosstöðvunum. Suðaustan 8-13 m/s og skúrir á morgun og mun mengun þá helst liggja til norðvesturs. Hiti yfirleitt á bilinu 1 til 5 stig við gosstöðvarnar. Talsverð óvissa er um styrk gasmengunar. Sjá gasdreifingarspá hér .

Gasdreifing17032024