Svipað veður áfram
Veðurhorfur næsta sólarhringinn
Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Skúrir S- og V-lands, einkum síðdegisl, hiti 8 til 16 stig.
Faxaflói:
Hægviðri og smá skúrir, einkum síðdegis. Hiti 11 til 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar súld sunnanlands, en skúrir inn til landsins. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast í innsveitum norðan- og vestanlands.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og víða súld eða dálítil rigning, en yfirleitt léttskýjað vestanlands. Milt veður.
Á þriðjudag:
Svipað veður áfram, en hvessir heldur sunnanlands.