Svipað veður á þjóðhátíðardaginn
Veðurhorfur næsta sólarhring
Norðlæg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir síðdegis. Hiti 10 til 15 stig yfir daginn.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag og laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Hiti 3 til 15 stig, svalast með A-ströndinni, en hlýjast SV-lands.
Á sunnudag (þjóðhátíðardagurinn):
Austlæg átt, skúrir S- og SV-lands, dálítil rigning á A-landi en úrkomulítið annars staðar. Hiti 8 til 14 stig, en svalara A-lands.