Svínaflensa í svínum á Minni-Vatnsleysu
Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Minni-Vatnsleysu er af völdum inflúensuveirunnar A(H1N1) eða Svínaflensu. Um leið og grunur vaknaði í gær voru settar takmarkanir á flutning lífdýra frá búinu og allar smitvarnir hertar, segir á heimasíðu Matvælatofnunar.
Tekið er fram að Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Bann við flutningi dýra frá búinu er sett til þess að koma í veg fyrir að smit berist til annarra búa.
Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi.
Sú almenna regla gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum, þetta á jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik. Svínaflensusmit berst ekki í fólk með neyslu svínakjöts.