Svenni Björgvins náði toppsætinu á Soundclick.com
Lagið Grief eftir Keflvíkinginn Svein Björgvinsson komst í efsta sæti Popp og rokk vinsældarlista tónlistarsíðunnar Soundclick.com í gær. Lagið er nú í 2. sæti. Tónlistarvefurinn Soundclick.com er einn sá stærsti í heiminum og á hverjum mánuði eru 50 þúsund ný lög sett á vefinn og um það bil 6 þúsund hljómsveitir skrá sig á hverjum mánuði. Listinn er uppfærður daglega. Hægt er að hlusta á lagið á vefsíðunni með því að fara á slóðina: http://www.soundclick.com/genres/chartsSub.cfm?genre=Pop&subgenre=127