Sveitarfélögin skoði samstarf um umdæmisráð barnaverndar
Félagsmálanefnd Grindavíkur leggur til að Grindavíkurbær hefji viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um samstarf um umdæmisráð barnaverndar.
Jafnframt er lagt til að Grindavíkurbær sæki um undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda að baki barnaverndarþjónustu á grundvelli fagþekkingar.
Bæjarráð Grindavíkur samþykkti tillögu félagsmálanefndar á síðasta fundi sínum og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.