Sveitarfélögin semji beint
Starfsmannafélag Suðurnesjabyggða og Starfsmannafélags Reykjanesbæjar hafa skorað á bæjar- og sveitastjórnir á Suðurnesjum að gefa Launanefnd sveitarfélaga ekki umboð til kjarasamningagerðar heldur sjái sveitarfélögin sjálf um kjarasamningagerð beint við félögin. Þessi ályktun var lögð fram á baráttufundi félaganna í Stapa 30. mars sl.Starfsmannafélögin telja það vera lítilvirðingu við starfsmenn sveitarfélaganna að vilja ekki semja heima í héraði. „Í umboði til Launanefndar sveitarfélaganna felst afsal á öllu sem heitir sjálfstæð starfsmannastefna og slíkt er ekki sjálfstæðum sveitarfélögum sæmandi“, segir í ályktuninni.Kjarasamningar starfsmannafélaganna renna út 31. október og er ljóst að félögin munu leggja áherslu á að sækja hækkanir sem ýmsir aðrir hópar hafa fengið hjá sveitarfélögunum á samningstímabilinu sem þá lýkur, auk almennra launahækkana og lagfæringar á kjörum og réttindum. Félögin segja að launastefna sveitarfélaganna, sem lýsir sér í að hygla sumum en láta aðra sitja hjá, verði ekki liðin.