HSS
HSS

Fréttir

Sveitarfélagið Voga eitt af sveitarfélögum ársins 2023
Fulltrúar sveitarfélaganna sem voru útnefnd tóku við viðurkenningum við hátíðlega athöfn. Frá hægri: Ólafur Þór Ólafsson staðgengill sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastrandar, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógarbyggðar og Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Vegna ófærðar komst fulltrúi Grímsnes- og Grafningshrepps ekki til að taka á móti viðurkenningu sveitarfélagsins en það var stigahæst, annað árið í röð.
Föstudagur 13. október 2023 kl. 10:29

Sveitarfélagið Voga eitt af sveitarfélögum ársins 2023

Sveitarfélögin Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Sveitarfélagið Vogar og Sveitarfélagið Skagaströnd hafa verið útnefnd Sveitarfélög ársins 2023. Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og þeim sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr. Tvö af áðurnefndum sveitarfélögum fengu einnig sömu nafnbót í fyrra, þ.e. Grímsnes- og Grafningshreppur og Bláskógabyggð. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki. Mikill meðbyr var með könnuninni í ár og fjölgaði þátttakendum milli ára.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það voru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja og stolt og jafnrétti. Borið saman við niðurstöður könnunarinnar í fyrra fengu launakjörin lakari einkunn í ár en aukin ánægja var með sveigjanleika vinnu og jafnrétti. Mest er óánægja með launakjör á leikskólunum, sér í lagi hjá leikskólaliðum. Niðurstöðurnar leiða t.d. líka í ljós óánægju með hljóðvist hjá starfsfólki leikskóla og íþróttamannvirkja, matar- og kaffiaðstöðu telur starfsfólk í öryggis- og eftirlitsstofnunum ábótavant og sömuleiðis sýnir könnunin að veikleiki er í samskiptum og stjórnun í öldrunarþjónustu.

Alls uppfyllti 21 sveitarfélag skilyrði fyrir niðurstöðum til að komast á lista sveitarfélaga með heildareinkunn. Það er fjölgun um sex sveitarfélög frá fyrra ári. Líkt og í fyrra fékk Grímsnes- og Grafningshreppur flest stig í heildarniðurstöðunum, eða 4.403. Þar á eftir kom Bláskógabyggð með 4.349 stig, þá Sveitarfélagið Vogar með 4.236 stig og í fjórða sæti Sveitarfélagið Skagaströnd með 4.217 stig.
Grímsnes- og Grafningshreppur fékk hæstu einkunnir allra fyrir launakjör, vinnuskilyrði, jafnrétti og deildi efsta sætinu hvað varðar þáttinn sjálfstæði í starfi með Bláskógabyggð. Bláskógabyggð var auk þess með hæstu einkunn allra sveitarfélaganna fyrir stjórnun, starfsanda og ímynd. Sveitarfélagið Vogar fékk hæstu einkunn allra sveitarfélaganna í þáttunum sveigjanleiki vinnu og ánægja og stolt.

Sem fyrr segir stóðu tíu bæjarstarfsmannafélög að könnuninni í samstarfi við Gallup. Þau eru: Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Vestmannaeyja, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, FOSS stéttarfélag í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Húsavíkur og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi.