HSS
HSS

Fréttir

Sveitarfélagið Garður kynnir nýja fjölskyldustefnu
Miðvikudagur 2. júní 2010 kl. 08:30

Sveitarfélagið Garður kynnir nýja fjölskyldustefnu


Á síðasta fundi bæjarstjórnar Garðs var samþykkt fjölskyldustefna sveitarfélagsins. Í fjölskyldustefnunni er kveðið á um hvernig sveitarfélagið ætlar að haga þjónustu sinni og stuðningi við fjölskyldur bæjarins.

Í fjölskyldustefnunni er lögð áhersla á að skapa fjölskylduvæn skilyrði fyrir íbúa með aðgerðum í þeim málaflokkum sem  tengjast velferð fjölskyldunnar.
Einnig að fjölskyldur njóti jafnræðis án tillits til fjölskyldugerðar og að íbúum
sveitarfélagsins sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis, trúarbragða, skoðana,
þjóðernisuppruna, litarháttar, efnahags, ætternis eða stöðu að öðru leyti. 
 Þá er áhersla lögð á að börn og unglingar fái tækifæri til að vaxa og þroskast við sem bestar aðstæður óháð fjölskyldugerð.

Hægt er að nálgast fjölskyldustefnuna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.garður.is

---

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VFmynd/Hilmar Bragi - Frá bæjarstjórnarfundi í Garði á dögunum.