Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sveitarfélagið Garður kaupir Útskálajörðina
Föstudagur 18. desember 2009 kl. 15:48

Sveitarfélagið Garður kaupir Útskálajörðina

Sveitarfélagið Garður keypti í dag kirkjujörðina Útskála af Kirkjumálasjóði. Undanskilið í sölunni voru lóðir undir prestssetur, safnaðarheimili, kirkju og kirkjugarð.

Útskála er fyrst getið um 1200 og hefur kirkja verið samfellt á staðnum frá þeim tíma. Þar er einnig. eitt elsta prestsetur landsins, sem nú er í eigu félags um uppbyggingu Útskála.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Jörðin er rúmlega 70 hektarar og nær meðal annars yfir hinn forna garð sem bæjarfélagið Garður er kenndur við og Garðskagavita. Sveitarfélagið hafði áður eignast hluta jarðarinnar.

Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri undirritaði kaupsamninginn f.h. Sveitarfélagsins í dag og Guðmundur Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri kirkjuráðs f.h. Kirkjumálasjóðs.



Ljósmynd: Oddgeir Karlsson