Svart & sykurlaust hefur göngu sína á www.vf.is
Svart & sykurlaust er nýr efnisflokkur á vef Víkurfrétta. Þátturinn er þekktur úr Víkurfréttum en hann hefur verið með hléum í blaðinu í um áratug. Svörtu & sykurlausu er ætlað að greina frá „tíðindum“ sem kannski er bara flugufótur fyrir, auk þess sem honum er ætlað að fjalla um allt milli himins og jarðar á léttum sem alvarlegum nótum.Við ætlum ekki að flytja Gróusögur í þættinum en erum í góðu sambandi við Gárungana, Ýmsa og Marga, svo eitthvað sé nefnt. Við hvetjum fólk til að standa með okkur vaktina og bendum á hnappinn FRÉTTASKOT ofarlega á síðunni. Þá má skoða Svart & sykurlaust með því að smella á hnappinn vinstra megin á forsíðu www.vf.is eða sjá nýjustu fyrirsagnir undir dagbókinni á forsíðu Víkurfrétta á Netinu. Njótið vel.