RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt
RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt

Fréttir

Svanhildur ráðin hjá Reykjanesbæ
Miðvikudagur 9. september 2015 kl. 16:07

Svanhildur ráðin hjá Reykjanesbæ

Svanhildur Eiríksdóttir hefur verið ráðin Verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá Reykjanesbæ. Svanhildur hefur starfað hjá Reykjanesbæ í 18 ár, lengst af við upplýsingagjöf og -miðlun, menningar- og markaðsmál  í Bókasafni Reykjanesbæjar. Auk þess sá hún um íbúavef Reykjanesbæjar sem var tilraunaverkefni árið 2014.
Svanhildur lauk mastersnámi í opinberri stjórnsýslu árið 2013, með upplýsingastjórnun og rafræn samskipti sem sérhæfingu, og grunnnámi í almennri bókmenntafræði árið 1999. Svanhildur hefur margsháttar reynslu af fjölmiðlun frá árinu 1992 sem blaðamaður, ritstjóri, útgefandi, útvarpsmaður og umsjón vefmiðla.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025