Svalir stækkaðar á Byggðasafninu í Garði
 Á fundi Skipulags-og bygginganefndar þriðjudaginn 26. apríl var tekið fyrir erindi þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir við nýbyggingu Byggðasafnsins í Garðinum. Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir að veitingarekstur verði á efri hæðinni. Með stækkun svalanna verður hægt að hafa borð og stóla á svölunum. Útsýnið verður glæsilegt og munu örugglega margir fá sér hressingu á veitingastaðnum og og njóta kyrrðarinnar og fegurðarinnar. Gert er ráð fyrir að Byggðasafnið opni eftir breytingar í júní eða byrjun júlí.

Vf-mynd/úr safni