Svaf ölvunarsvefni undir stýri við lögreglustöðina
Ökumaður sem lagt hafði í bifreiðastæði við lögreglustöðina í Keflavík í gærkvöld reyndist sofa ölvunarsvefni undir stýri þegar lögreglumenn ætluðu að taka hann tali. Hann viðurkenndi akstur undir áhrifum áfengis og var færður inn á lögreglustöðina þar sem tekin var af honum skýrsla.
Var ökumaðurinn síðan látinn sofa úr sér. Hann gat ekki framvísað ökuskírteini og í bifreið hans fannst tveggja lítra flaska með meintum landa.
Annar ökumaður var handtekinn fyrr í vikunni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Hann játaði neyslu á kannabis.
Loks var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur. Bifreið hans mældist á 129 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.