HSS
HSS

Fréttir

Súrefnissía gefin Sundmiðstöðinni
Miðvikudagur 18. júlí 2007 kl. 12:34

Súrefnissía gefin Sundmiðstöðinni

K-Matt ehf færði í gær Sundhöllinni í Reykjanesbæ Intergra 10 súrefnissíu til eignar og notkunar við sundlaugina. Jafnframt ábyrgist K-Matt ehf viðhald og þjónustu við tækið ásamt kennslu. Tækið nýtist þeim sjúklingum sem þurfa  súrefnisgjöf og vilja nota sundlaugina en það er fyrirferðalítið og afar meðfærilegt. Með því fylgir 50 metra löng loftslanga sem hægt er að lengja að vild. Verðmæt gjafarinnar nemur 530 þúsund krónum.

Kristján Matthíasson í Reykjanesbæ stofnaði K-matt ehf síðastliðið haust í því skyni að hefja innflutning á byltingarkenndu tæki, svokallaðri Eclipse súrefnissíu,  fyrir sjúklinga sem háðir eru notkun súrefniskúta. Fyrsta tækið var afhent Gunnari Guðnasyni í nóvember á síðasta ári. Gunnar hafði í rúm fimm ár verið algerlega háður notkun súrefniskúta allan sólarhringinn. Mikil fyrirhöfn fylgdi notkun kútanna  og þurfti hann að vera með allt að 10 kúta inni á heimilinu í einu. Tækið er hins vegar afar meðfærilegt og vegur aðeins 7,6 kíló.
Súrefnissíurnar þarf  ekki að fylla á eins og kútana því þær  vinna og framleiða súrefni úr andrúmsloftinu. Gunnar segir tækið hafa létt sér lífið til mikilla muna. Um 100 tæki eru nú í notkun hér á landi.

Efri mynd:
Frá afhendingu tækisins í dag. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, tók við tækinu fyrir hönd Reykjanesbæjar af Kristjáni Matthíassyni. Með þeim á myndinni er Gunnar Guðnason sem fékk afhent fyrsta tækið í haust.

Neðri mynd:
Tækið er afar meðfærilegt og gerir sjúklingum háðum súrefnisgjöf kleift að nýta sér sundlaugina.

VF-myndir: elg


Bílakjarninn
Bílakjarninn