Súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðja í Voga?
– ÍSAGA sækir um lóð í Vogum á Vatnsleysuströnd
ÍSAGA hefur áhuga á að byggja upp nýja súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju í Vogum á Vatnsleysuströnd og hefur sent bæjaryfirvöldum erindi um ósk um lóð fyrir starfsemina.
Í erindinu er lýst áformum fyrirtækisins um uppbyggingu nýrrar súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut, ásamt því að starfsemi fyrirhugaðrar verksmiðju er lýst nánar í erindinu.
Í erindinu er þess farið á leit við Sveitarfélagið Voga að það gefi á þessu stigi umsögn um fyrirhugaða framkvæmd og þeirri breytingu sem fyrirséð er að gera þurfi á deiliskipulagi vegna hæðar kæliturns og tanka, áður en lengra er haldið í undirbúningi.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga fagnar áhuga Ísaga ehf. og tekur jákvætt í erindið sem vísað hefur verið til umfjöllunar hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd, hvað varðar skipulagsþætti málsins.