Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sunnan og suðaustanáttir framundan með vætu
Sunnudagur 2. nóvember 2008 kl. 10:25

Sunnan og suðaustanáttir framundan með vætu

Veðurspá fyrir Faxaflóa næsta sólarhringinn: Suðaustan 8-15 m/s og rigning, en sums staðar allt að 20 m/s í fyrstu. Suðvestan 5-10 og stöku skúrir eftir hádegi, en 8-15 á morgun og áfram skúrir. Hiti 3 til 8 stig.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Sunnan- og suðaustanáttir. Hvassviðri vestantil aðfaranótt miðvikudags en annars hægari. Úrkomusamt á sunnan- og vestanverðu landinu en skýjað að mestu og úrkomulitið norðaustanlands. Hiti 3 til 9 stig.

Á föstudag:
Austan átt. Rigning með köflum sunnan- og austanlands en annars úrkomulitið. Hiti 2 til 8 stig, mildast sunnanlands.

Á laugardag:
Útlit fyrir austan hvassviðri og rigningu, einkum um sunnanvert landið. Hiti 2 til 8 stig.