Sunnan 3-8 á morgun
 Á Garðskagavita voru VSV 2 og 11 stiga hiti klukkan 9
Á Garðskagavita voru VSV 2 og 11 stiga hiti klukkan 9
Klukkan 6 í morgun var hægviðri á landinu. Skýjað suðvestan- og vestanlands, sums staðar þoka við norðurströndina, annars léttskýjað. Hiti var 1 til 12 stig, svalast á Þingvöllum
Veðurhorfur næsta sólarhringinn:
Vestan og suðvestan 3-5 m/s, skýjað að mestu og súld öðru hverju. Sunnan 3-8 á morgun. Hiti 10 til 16 stig. 
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun: 
Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og súld öðru hverju vestanlands, annars léttskýjað að mestu. Hæg suðlæg átt á morgun. Skýjað og súld með köflum vestan- og sunnanlands, annars bjartviðri. Hiti 10 til 20 stig að deginum, hlýjast norðaustanlands.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				