Fréttir

  • Sundmiðstöðin í Reykjanesbæ er 25 ára í dag
  • Sundmiðstöðin í Reykjanesbæ er 25 ára í dag
Þriðjudagur 3. mars 2015 kl. 09:11

Sundmiðstöðin í Reykjanesbæ er 25 ára í dag

Í dag, 3. mars, eru 25 ár síðan Sundmiðstöðin við Sunnubraut í Reykjanesbæ var tekin í notkun. Gamla Sundhöllin þjónaði fyrir þann tíma bæði almenningi og kennslu grunnskólabarna, auk æfinga hjá sunddeildinni. 
 
Það voru mikil viðbrigði að fá glæsilega 25 metra útilaug, heita potta, gufubað og síðast en ekki síst stóra rennibraut sem yngri kynslóðin fagnaði mjög. Þá var í húsinu líkamsræktarstöð sem Perlan rak fyrst og síðan Lífsstíll. 
 
Árið 2006 opnaði  glæsileg 50 metra innilaug og vatnsleikjagarður fyrir yngstu börnin. Miklar endurbætur voru gerðar á öllu lagnakerfi útilaugarinnar og pottanna í haust og tókust þær framkvæmdir vel.  
 
Frá árinu 1990 hafa um 2,7 milljónir gesta komið í laugina. Í Sundmiðstöðinni starfa 14 manns.
 
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024