Sundmenn ÍRB syntu áheitasjósund
Það voru hressir krakkar sem mættu á Njarðvíkurhöfn á föstudaginn var. Þau höfðu safnað áheitum og ætluðu að synda frá Víkingaheimum að höfninni í Keflavík á Ljósanótt en urðu frá að hverfa þá vegna veðurs.
Þau lögðu þó ekki árar í bát og um leið og veður var orðið gott og hinir frábæru liðsmenn í Björgunarsveitinni Suðurnes gáfu grænt ljós á sundið var lagt af stað.
Það voru á milli 25 og 30 sundmenn úr ÍRB sem syntu en skipst var á að synda 2-3 sundmenn í 10 mín í senn. Sundmennirnir voru á aldrinum 14-20 ára.
ÍT Reykjanesbæjar hafði heitið á krakkana kr. 50.000 og tók Stefán Bjarkason á móti þeim við komuna til hafnar í Keflavík en þar hafði einnig foreldraráðið sett upp móttöku með heitri súpu og brauðbollum.
Sundráð ÍRB (sunddeildir Keflavíkur og UMFN) vilja þakka þeim fjölmörgu sem hétu á sundmennina og síðast en alls ekki síst skipverjum á bátum Björgunarsveitarinnar Suðurnes sem gerði þeim þetta verkefni kleift.