Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sundlaugarperri fékk 6 mánaða skilorð
Fimmtudagur 12. júní 2008 kl. 16:13

Sundlaugarperri fékk 6 mánaða skilorð

Sundlaugarperri fékk í 6 mánaða skilborðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjaness í dag en hann varð uppvís varð að því fyrir nokkrum mánuðum að leita kyndferðislega á ungar stúlkur í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ. Maðurinn, sem er útlendingur, hefur verið í farbanni vegna málsins. Hann var auk þess dæmdur til að greiða hverri stúlku 100 þúsund krónur í miskabætur. Ellefu kærur voru lagðar fram gegn manninum í upphafi og var dæmt í níu þeirra.

Móðir einnar stúlkunnar segist í samtali við VF ekki vera sátt við dóminn og segir  hann vægan.  Hún segir bæturnar hafa átt að renna til Blátt áfram, samtaka um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Þar sem sakborningur sé ekki borgunarmaður fyrir bótunum verði að sækja þær til ríkissjóðs. Það þýði hins vegar lögfræðikostnað upp á 20 – 30 þúsund krónur. Bæturnar sé einungis hægt að fá inn á lokaða bankabók sem stúlkan geti ekki leyst út fyrr en við 18 ára aldur. Stúlkan er 12 ára.

Mynd: Frá Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024